{"title":"WAY OF LIFE (gamalt, handvalið)","description":"\u003cp\u003eWay of Life er íslenskt fyrirtæki sem flytur inn og selur vandaðar heilsuvörur, og undir eigin merki þróum við líka vörur sjálf. Hér eru vörurnar sem bera nafnið okkar.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eÍ flokknum er infrarauði sauna pokinn, færanleg sauna fyrir heimilið þar sem þú stillir sjálf hitastig og tímalengd og gengur frá honum eftir notkun. Hann hentar þeim sem vilja koma hita og slökun inn í rútínuna án þess að leggja undir fast pláss fyrir gufubað. Fleiri vörur bætast við í þennan flokk eftir því sem merkið stækkar.\u003c\/p\u003e","products":[{"product_id":"deep-rest-blue-blocker-gleraugu","title":"DEEP REST Blue Blocker gleraugu","description":"\u003ch3\u003e\u003cstrong\u003eMýkri birta á kvöldin, rólegri kvöldrútína\u003c\/strong\u003e\u003c\/h3\u003e\n\u003cp\u003eGerðu kvöldin rólegri með \u003cstrong\u003eDeep Rest\u003c\/strong\u003e blue blocker gleraugunum frá \u003cstrong\u003eWay of Life\u003c\/strong\u003e, hágæða og stílhreinum gleraugum sem \u003cstrong\u003esía bláa og græna birtu frá skjám og gervilýsingu\u003c\/strong\u003e. Margir upplifa að mýkri birta á kvöldin hjálpi þeim að vinda ofan af sér fyrir háttinn.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞetta eru ekki bara hvaða gleraugu sem er, þau eru hönnuð með \u003cstrong\u003egæði, þægindi og útlit\u003c\/strong\u003e í fyrirrúmi. Léttar og flottar gjarðir sem \u003cstrong\u003epassa á flest andlit\u003c\/strong\u003e og eru þægileg að nota kvöld eftir kvöld.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEftir margra ára notkun á blue blocker gleraugum ákváðum við hjá Way of Life að hanna okkar eigin blue blocker gleraugu sem blokka græna og bláa birtu (bylgjulengdir: 400-550nm) og eru stílhrein, þægileg og flott!\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eLucid Dark\u003c\/strong\u003e og \u003cstrong\u003eAbyss Dark\u003c\/strong\u003e eru sömu umgjarðir og Lucid og Abyss, með aðeins dekkri glerjum sem sía alla bláa og græna birtu. Þau henta vel fyrir framan sjónvarp og tölvu á kvöldin, en eru ekki ætluð til aksturs.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eDeep Rest\u003c\/strong\u003e gleraugun sía birtuna sem umlykur þig á kvöldin og gera \u003cstrong\u003ekvöldrútínuna\u003c\/strong\u003e þína notalegri.\u003c\/p\u003e\n\u003ch3\u003e\u003cstrong\u003eHvers vegna blue blocker gleraugu?\u003c\/strong\u003e\u003c\/h3\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cstrong\u003eMýkri birta\u003c\/strong\u003e, gleraugun sía bláa og græna birtu frá skjám, ljósum og sjónvarpi\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cstrong\u003eRólegri kvöldstund\u003c\/strong\u003e, mörgum finnst auðveldara að vinda ofan af sér í mýkri birtu\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cstrong\u003eÞægilegri skjánotkun á kvöldin\u003c\/strong\u003e, hvort sem þú ert að vinna, lesa eða horfa á þætti\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cstrong\u003eLétt og stílhrein\u003c\/strong\u003e, þú gleymir að þú sért með þau á nefinu\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003cp\u003eNotaðu þau fyrir framan skjái á kvöldin, í sjónvarpsglápi eða við lestur áður en þú ferð að sofa, og finndu muninn.\u003c\/p\u003e","brand":"WAY OF LIFE","offers":[{"title":"Eclipse","offer_id":46506553835748,"sku":"WOL-BB-DR-ECLIPSE-SR2119","price":12990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"Lucid","offer_id":46506553868516,"sku":"WOL-BB-DR-LUCID-SR2301","price":12990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"Abyss","offer_id":46506553901284,"sku":"WOL-BB-DR-ABYSS-SR5025","price":12990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"Drift","offer_id":47981625508068,"sku":"WOL-BB-DR-DRIFT-SR3025","price":12990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"Lucid Dark","offer_id":49833756557540,"sku":"WOL-BB-DR-LUCID-DARK-SR2301","price":12990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"Abyss Dark","offer_id":49833783394532,"sku":"WOL-BB-DR-ABYSS-DARK-SR5025","price":12990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0627\/2466\/9668\/files\/Eclipse.png?v=1757084793"},{"product_id":"infraraudur-sauna-poki","title":"Infrarauður sauna poki","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eInfrarauður saunapoki frá Way of Life, hlýja og ró heima í stofu\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eUpplifðu huggulega infrarauða saunu, heima í stofu eða hvar sem er! Með \u003cstrong\u003eWay of Life infrarauða saunapokanum\u003c\/strong\u003e getur þú einfaldlega dregið fram pokann hvenær sem þér hentar, rennt þér ofan í hann, stillt viðeigandi hitastig og tímalengd, og leyft innrauðu bylgjunum og hitanum (allt að 80°C) að umvefja þig.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003ePokinn er hitateppi sem auðvelt er að brjóta saman og geyma. Þú dregur hann fram þegar þér hentar og leggur hann frá þér á milli, án þess að hann taki pláss. Rennilásinn gerir þér auðvelt að renna þér ofan í og upp úr aftur.\u003c\/p\u003e\n\u003ch3\u003eEiginleikar\u003c\/h3\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003e\u003cstrong\u003eHitastig allt að 80°C\u003c\/strong\u003e\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\u003cstrong\u003eStillanleg tímalengd, þú stjórnar ferðinni\u003c\/strong\u003e\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\u003cstrong\u003eLaus við skaðleg efni\u003c\/strong\u003e\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\u003cstrong\u003ePrófað hjá SGS og uppfyllir RoHS\u003c\/strong\u003e\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\u003cstrong\u003eLág EMF-smíði\u003c\/strong\u003e\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\u003cstrong\u003eRennilás fyrir þægilega notkun\u003c\/strong\u003e\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003ch3\u003eNotkun\u003c\/h3\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cstrong\u003eUndirbúningur.\u003c\/strong\u003e Leggðu pokann á sléttan flöt og handklæði innan í.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cstrong\u003eKlæðnaður.\u003c\/strong\u003e Léttur bómullarfatnaður með löngum ermum og sokkar, svo svitinn liggi ekki upp við efnið.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cstrong\u003eHitastig og tími.\u003c\/strong\u003e Byrjaðu í neðri stillingum í tuttugu til þrjátíu mínútur og vinndu þig upp. Hann fer í áttatíu gráður.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cstrong\u003eVökvi.\u003c\/strong\u003e Vatn fyrir og eftir.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cstrong\u003eÁ eftir.\u003c\/strong\u003e Gefðu þér tíu mínútur áður en þú stendur upp og farðu svo í sturtu.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cstrong\u003eÞrif og geymsla.\u003c\/strong\u003e Strjúktu að innan með rökum klút, leyfðu að þorna opnum og brjóttu svo saman.\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003cp\u003eMargir taka pokann fram til að ylja sér og slaka á eftir langan dag eða æfingu, með hljóðbók eða tónlist í eyrunum.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003eATH: Ef þú ert þunguð, með hjartasjúkdóm, með of háan eða of lágan blóðþrýsting, eða tekur lyf sem hafa áhrif á blóðþrýsting eða vökvajafnvægi, talaðu þá við lækninn þinn áður en þú prófar.\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"WAY OF LIFE","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":43331274506468,"sku":"WOL-IRSB","price":74990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0627\/2466\/9668\/files\/1_c153212d-0d24-44d3-bf9e-525f66223019.png?v=1783384394"}],"url":"https:\/\/www.wayoflife.is\/collections\/way-of-life-handvalid-gamalt.oembed","provider":"Way of Life","version":"1.0","type":"link"}