Way of Life
Undirstöður
Undirstöður
Fjórar undirstöður í átt að betri líðan

HREYFING
Regluleg hreyfing hjálpar okkur að líða vel í eigin líkama og eflir heilsuna okkar í alla staði. Til að halda líkamanum okkar unglegum þurfum við að huga að stoðkerfinu okkar með góðri líkamsstöðu, mjúkum vöðvum, góðum liðleika og skilvirkri hreyfigetu.

NÆRING
Heilbrigt mataræði snýst ekki aðeins um hitaeiningar heldur fyrst og fremst hversu ríkt magn af næringarefnum eins og vítamínum og steinefnum við innbirgðum sem gefur líkamanum okkar það sem hann þarf til að starfa eðlilega.

SVEFN
Svefninn er tíminn þar sem við uppskerum því sem við höfum sáð. Svefninn snýr að endurheimt, hreinsun og tiltekt líkama og sálar. Það er lykilatriði að gefa líkamanum okkar þann svefn sem við þurfum. En það er ekki síður mikilvægt að huga að gæðum svefnsins.
JAFNVÆGI
Jafnvægi er forsenda heilsu. Til að vera við góða heilsu þurfum við að vera í góðu jafnvægi bæði andlega og líkamlega. Því skiptir máli að rækta sálarlífið okkar, félagsleg tengsl ásamt því að huga að streitustjórnun með leiðum eins og öndun, hugleiðslu, slökun, áhugamálum og fleiru.