Beint í efni
Frí sending á Dropp og ólífuolía í kaupbæti frá 12.990 kr

blackswan by Way of Life

blackswan

Lausn fyrir tölvu og síma

Verndaðu nóttina. Leyfðu dagsbirtunni að ráða. blackswan gerir skjáinn hlýrri og daufari á kvöldin og dregur úr flökti, svo kvöldið verði rólegra. Svo leggurðu skjáinn frá, því ekkert kemur í stað dimmrar nætur.

Átt þú DEEP REST gleraugu? Þá er fyrsti mánuðurinn frír.

Sami skjár að degi til, í venjulegum litum
Dagur 14:00 Kvöld 22:00

Sama mynd á tölvu og síma: vinstra megin eins og hún lítur út að degi til, hægra megin eftir að blackswan hefur dregið úr blárri og grænni birtu á skjánum um kvöldið.

Prófaðu

Svona lítur kvöldið út.

Færðu sleðana og sjáðu hvað blackswan gerir við skjáinn. Á tölvunni verður allur skjárinn svona, í öllum forritum.

wayoflife.is
Svartur svanur syndir á blárri tjörn
Kvöldið á skjánum.

Blátt vatn, grænar speglanir, rauður goggur og litirnir hér til hliðar.

Sýnishorn. Morgunn, dagur og kvöld skipta sjálf eftir háttatímanum þínum.

Af hverju

Af hverju blackswan?

Vertu svarti svanurinn: sá sem tekur eftir því að ljós á kvöldin skiptir máli og lifir eftir því. Þú stillir háttatímann einu sinni og blackswan skiptir sjálft yfir í kvöldstillingu tveimur tímum fyrir háttatíma, í morgunstillingu þegar þú vaknar og í dagstillingu yfir daginn.

Flöktvörn

Margir skjáir deyfa birtuna með því að kveikja og slökkva á baklýsingunni mörg hundruð sinnum á sekúndu. Flöktvörnin heldur baklýsingunni í fullum styrk og deyfir myndina sjálfa í staðinn. Virkar líka á flestum utanáliggjandi skjám.

Fer eftir háttatíma, ekki sólarlagi

Á Íslandi sest sólin nærri miðnætti á sumrin og snemma síðdegis á veturna. Þess vegna fer blackswan eftir þínum háttatíma og skiptir mjúklega á milli.

Einn lykill, öll tækin

Sami lykill á tölvuna og símann. Háttatíminn fylgir á milli tækjanna, og flýtilykill eða hnappur í flýtistillingum skiptir á milli dags og kvölds.

Truflar ekki vinnuna

Ef þú starfar við myndvinnslu eða hönnun getur þú stillt blackswan eftir þínu höfði og valið forrit sem sían sleppir, svo litirnir haldist réttir á meðan þú vinnur.

Nafnið á sér rót í rannsókn. Árið 2020 fluttu vísindamenn svarta svani úr borginni í útigirðingu með götuljósum og mældu hvíld þeirra. Jafnvel hlýtt, rauðgult ljós minnkaði næturhvíldina miðað við myrkur. Þess vegna lofum við aldrei að hlýr skjár komi í stað myrkurs.

Áskrift

Byrjaðu í kvöld

Gleraugun fyrir sjónvarpið og herbergið. Forritið fyrir tölvuna og símann.

DEEP REST gleraugun og blackswan eru gerð til að vinna saman á kvöldin.

Skoða gleraugun

Spurt og svarað.

Hvað kostar blackswan?

990 kr. á mánuði eða 7.900 kr. á ári. Ef þú átt DEEP REST gleraugu er fyrsti mánuðurinn frír. Notaðu netfangið sem þú keyptir gleraugun á og við sjáum það sjálfkrafa.

Á hversu mörgum tækjum get ég notað það?

Sami lykill virkar á allt að þremur tækjum í einu, til dæmis tölvu, síma og vinnutölvu. Háttatíminn fylgir á milli þeirra.

Hvernig segi ég upp?

Í appinu velur þú Manage subscription. Þú getur líka farið á umsýslusíðuna og fengið hlekk í tölvupósti. Þú heldur aðganginum út tímabilið sem þú hefur greitt fyrir.

Ég týndi lyklinum.

Farðu á umsýslusíðuna og sláðu inn netfangið. Við sendum þér hlekk á lykilinn þinn.

Hvernig set ég það upp á Mac?

Opnaðu zip skrána og dragðu blackswan í Applications. Útgáfan er ekki enn vottuð af Apple, svo Mac stoppar hana í fyrsta skipti. Farðu þá í System Settings, Privacy & Security, og veldu Open Anyway. Way of Life merkið birtist svo efst í valmyndastikunni, við hliðina á klukkunni.

Hvernig set ég það upp á Windows?

Opnaðu zip skrána og ræstu blackswan. Útgáfan er ekki enn vottuð, svo Windows gæti sýnt bláan glugga. Veldu þá More info og Run anyway. blackswan birtist svo í kerfisbakkanum neðst til hægri.

Hvernig set ég það upp á Android?

Sæktu skrána í símanum, opnaðu hana og leyfðu uppsetningu frá vafranum. Þegar forritið opnast biður það um leyfi til að birtast yfir öðrum forritum, svo sían nái yfir allan skjáinn. Útgáfa í Google Play er á leiðinni.

Af hverju er iPhone öðruvísi?

Apple leyfir engu forriti að breyta litum skjásins. Útgáfan fyrir iPhone stillir því innbyggðu rauðu síuna í iOS og flöktvörnina fyrir þig og sér um að skipta á kvöldin. Hún kemur í App Store og sami lykill virkar þar.

Tekur það allt bláa ljósið?

Á tölvunni er blátt og grænt ljós tekið alveg af skjánum í kvöldstillingu, svo aðeins rautt ljós er eftir. Á Android er sían lögð yfir skjáinn og tekur stærstan hluta bláa ljóssins, en ekki allt, því Android leyfir síu að hámarki 80% styrk.

Af hverju er forritið á ensku?

blackswan er gert fyrir notendur um allan heim, svo forritið sjálft er á ensku. Í appinu heita stillingarnar þrjár Morning (morgunn), Afternoon (dagur) og Evening (kvöld), og sleðarnir Warmth (hlýja) og Brightness (birta).

Komið í körfuna