Shipping policy
Sendingarmáti
Pantanir eru sendar með Dropp frá Gorilla vöruhúsi og gilda almennir afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Gorilla/Dropp um afhendingu vörunnar.
Way of Life tekur ekki ábyrgð á vörum eftir að þær hafa verið póstlagðar.
Sendingartími er 1-2 virkir dagar að jafnaði. Sendingar sem eru pantaðar fyrir kl 12 á virkum dögum eru sendar samdægurs á höfuðborgarsvæðinu, daginn eftir fyrir landsbyggðina. Sendingar geta tekið fleiri daga ef eitthvað kemur upp á.
Way of Life tekur ekki ábyrgð á að viðskiptavinir séu með rétt merkta póstkassa, póstlúgur eða heimilisfang. Í þeim tilfellum þar sem merkinga er ábótavant mun Dropp senda pöntunina til baka og lendir tilfallandi kostnaður á kaupanda.
Skilafrestur eða endurgreiðsla
Skilafrestur pantana er 14 dagar frá kaupdegi og skal ósk um skil berast með tölvupósti á info@wayoflife.is
Einungis er hægt að skila vörum sem eru ónotaðar og/eða enn í upprunalegum umbúðum með órofið innsigli.
Endurgreiðsla fer fram þegar varan er komin aftur í hendur seljanda.
Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan þann kostnað sem gæti komið upp við heimsendingu.