Um okkur

Hugmynd sem kviknaði í heimsfaraldri

Rafn, Kristján og Marta sameinast af ástríðu fyrir heilbrigðum lífsstíl og bættri vellíðan. Áhuginn kviknaði löngu áður, en heimsfaraldurinn varð vendipunkturinn þar sem hugmyndin að Way of Life varð til.

Sagan okkar

Þegar heimurinn stöðvaðist, vaknaði spurning

Þegar heimurinn stöðvaðist og óvissa tók við fóru margir að einbeita sér meira að eigin heilsu. Hjá okkur vaknaði spurningin sem allt fyrirtækið byggir á:

Hvernig get ég tekið meiri ábyrgð á minni eigin heilsu?
Morgunkyrrð með ULTRAHUMAN AIR hringnum, íslenskt hraun í mistri
Upphafið

Við sáum tækifæri

Markmiðið var að stofna fyrirtæki sem gerir hágæða heilsuvörur aðgengilegri fyrir Íslendinga, vörur sem við notum sjálf og treystum.

Árið 2022 varð Way of Life að veruleika með skýra framtíðarsýn: Að færa Íslendingum hreinar, áhrifaríkar, hágæða heilsuvörur án málamiðlana.

Skoða vörur
Upphaf Way of Life
Gildin okkar

Hvað gerir okkur einstök?

Við veljum vandlega

Við veljum vandlega

Ef við myndum ekki nota vöruna sjálf þá myndum við ekki selja hana.

Við forgangsraðum gæðum

Við forgangsraðum gæðum

Náttúruleg innihaldsefni, án óþarfa aukefna, litarefna eða sætuefna.

Lausnir við nútíma áskorunum

Lausnir við nútíma áskorunum

Vörur okkar styðja við náttúrulegan lífsstíl og vega upp á móti áhrifum nútíma umhverfis.

Ferðalagið hingað til

Úr hugmynd í fyrirtæki sem þjónar þúsundum

Frá því að við hófum starfsemi árið 2021 hefur Way of Life vaxið úr hugmynd í fyrirtæki sem þjónar þúsundum viðskiptavina um allt land.

Það sem skiptir okkur mestu máli eru þó ekki tölurnar, heldur áhrifin. Sögurnar af fólki sem sefur betur, finnur fyrir meiri orku og líður almennt betur, hvetja okkur áfram.

4+

Ár í rekstri

Traust samband við viðskiptavini og endursöluaðila.

10+

Endursöluaðilar

ELKO, Krónan, Lyfja, Nova, Nettó og fleiri.

6

Vörumerki

Valin af kostgæfni frá fjórum löndum.

1

Markmið

Betri lífsstíll fyrir þig og þína.

Ferðalagið, vegur í gegnum íslenskt hraun
Lausnirnar

Nútímalegar lausnir fyrir nútíma lífsstíl

Í hraðskreiðum heimi nútímans er mikilvægt að geta stutt við eigin heilsu á einfaldan og árangursríkan hátt. Við bjóðum snjallar lausnir sem hjálpa þér að viðhalda jafnvægi, fylgjast með eigin líkama og bæta daglega vellíðan:

Þetta eru vörur sem við notum sjálf á hverjum degi, vegna þess að þær virka og bæta líf okkar í raun og veru.

CHROMA Radiance
Hvert stefnum við?

Við erum rétt að byrja. Heilsa er ekki lúxus. Heilsa er okkar náttúrulega ástand, þegar líkaminn fær það sem hann þarfnast.

Markmið okkar er að halda áfram að bjóða upp á vörur sem bæta líf fólks og gera heilbrigðan lífsstíl aðgengilegan og aðlaðandi fyrir alla Íslendinga.

Fólkið

Way of Life teymið

Rafn Franklin

Rafn Franklin

Stofnandi og forstjóri

Kristján Gilbert

Kristján Gilbert

Meðstofnandi, rekstrar- og samskiptastjóri

Marta Kristjónsdóttir

Marta Kristjónsdóttir

Markaðsstjóri