Skip to product information
1 of 4

ULTRAHUMAN

ULTRAHUMAN AIR Snjallhringur

ULTRAHUMAN AIR Snjallhringur

Almennt verð 64.990 kr
Almennt verð Útsöluverð 64.990 kr
Tilboð Uppselt
Með vsk Shipping calculated at checkout.
STÆRÐ
LITUR

Dreifðu greiðslunum eins og þér hentar með NETGÍRÓ!

ATH. Sérpantanir eru afgreiddar 1-3 vikum eftir pöntun.

Fylgstu með lífsstílnum, svefninum, hreyfingunni og alhliða heilsu með AIR snjallhringnum frá Ultrahuman.

Léttasti og snjallasti hringur í heimi!

Ertu óviss með stærðina á hringnum þínum? Finndu stærðina þína með ULTRAHUMAN SIZING APPINU. Þú getur einnig pantað frítt mátunarsett sem gerir þér kleift að finna þína fullkomnu stærð.

View full details

HÁRMARKAÐU SVEFNGÆÐIN

Fylgstu með svefngæðunum þínum í rauntíma og uppgötvaðu hvaða áhrif REM og NREM svefn hafa áhrif á efnaskiptaheilsuna þína og öfugt

BETRI HREYFING

Fylgstu með hvaða áhrif æfingarnar hafa á þinn líkama.
Hringurinn fylgist með gildum eins og hjartslætti, HRV, skrefum, hitaeiningabrennslu og fleiru.

BETRI ÁRANGUR OG ENDURHEIMT

Mældu árangurinn þinn og endurheimt með mikilvægum lífsgildum.

Uppgötvaðu hvernig mælingar eins og hjartsláttur, HRV (Heart Rate Variability), líkamshiti og fleira breytast með lífsstílsbreytingum og umhverfisþáttum.

Algengar spurningar (FAQ)

Hvaða gildi mælir hringurinn?

  • Ultrahuman hringurinn færir þér víðtæka innsýn í eigið heilbrigði og líkamsástand. Hringurinn mælir hluti eins og hreyfingu (æfingar, skref, brennslu o.þ.h), hjartslátt, HRV (heart rate variability), líkamshita, svefngæði (NREM og REM svefn), svefnlengd, súrefnismettun og fleira. Allar þessar upplýsingar sameinast einnig með upplýsingum frá M1 blóðsykursmæli ef viðkomandi notar slíkan mæli samhliða.

Hvernig vel ég rétta stærð?

Við kaup færðu sendan mátunarpakka með plasthringum í stærðum frá 6-12. Athugið að Ultrahuman hringastærðirnar eru ekki alveg eins og hefðbundnar US hringastærðir. Við bjóðum ekki upp á hálfstærðir.

Plasthringarnir eru smíðaðir í nákvæmlega sama móti og alvöru hringarnir svo þú getir fundið þína fullkomnu stærð. Plasthringarnir eru þó aðeins léttari en alvöru hringarnir.

Hvað er innifalið með hringnum?

Með öllum hringum fylgir USB A-C kapall og hleðslukubbur fyrir hringinn.

Hvaða símtæki styðja Ultrahuman hringinn?

Ultrahuman hringurinn styður Iphone stýrikerfi iOS 14 og nýrra og Android síma með Android 6 eða nýrra.
Síminn þinn þarf einnig að styðja bluetooth 4.0 eða nýrra.

Hvaða stærðir eru í boði fyrir hringana?

Ultrahuman hringarnir eru fáanlegir í 7 stærðum, frá 6-12. Við bjóðum ekki upp á hálfstærðir.

Hvaða litir eru í boði fyrir hringana?

Ultrahuman hringarnir koma í 4 mismunandi litum:
Matte Grey, Space Silver og Bionic Gold

Getur hringurinn rispast við daglegar athafnir, æfingar o.þ.h?

Hringarnir eru hannaðir til að vera eins sterkbyggðir og mögulegt er. Hringarnir eru smíðaðir með vottuðu títaníum efni með sérstaklega rispuvarðri "tungsten carbide" húðun til að lágmarka líkur á rispum og skemmdum við daglegar athafnir.

Fer illa með húðina að nota hringinn til lengri tíma?

  • Ultrahuman hringurinn er hannaður með húðina þína í huga. Hringurinn er smíðaður með "hypoallergenic" efnum sem gera hann hentugan fyrir langtímanotkun og einnig fólk með viðkvæma húð.

Má nota hringinn á æfingum, í ræktinni eða í sundi?

Já það er fullkomlega öruggt að nota hringinn á æfingum. Hringurinn er bæði svita og vatnsvarinn niður í allt að 2,2m dýpi.

Er hringurinn vatnsvarinn?

Já, hringurinn er fullkomlega vatnsheldur niður í allt að 2,2m dýpi í allt að 30 mínútur. Það má því auðveldlega þvo á sér hendurnar, fara í sturtu og í sund með hringinn.
Við mælum þó ekki með að halda hringnum ofan í vatni í of langan tíma í senn. (Framleiðendur eru að bíða eftir að fá IPX7 vottun)

Þarf ég alltaf að hafa símann á mér svo að hringurinn virki?

Hringurinn er með innbyggt 4-6 daga minni sem þýðir að þú getur verið án símans í þennan tíma án þess að gögnin sem hringurinn aflar, tapist.

Hversu lengi endist rafhlaðan á hringnum og hver er hleðslutíminn?

Fullhlaðinn hringur endist í u.þ.b 4-6 daga miðað við hefðbundna notkun. Hlutir eins og aldur rafhlöðu, hitastig og notkun geta þó haft áhrif á endingartíma.

Það tekur um 1,5-2 klst að fullhlaða hringinn.

Hvaða fingur er best að bera hringinn á?

Við mælum með því að bera hringinn á vísifingri, löngutöng eða baugfingri.

Hvað gerist ef hringurinn festist?

  • Stærðin á fingrunum þínum og hringnum getur verið örlítið breytileg gegnum daginn og undir ákveðnum kringumstæðum gæti hann virkað þrengri og því erfiðara að fjarlægja hann.
    Ef hringurinn fesist alveg á fingrinum þínum getur þú prófað eftirfarandi:
  • Láttu renna kalt vatn á hendina, settu sápu á fingurinn á þér og reyndu að skrúfa hann rólega af.
  • Haltu hendinni hátt uppi, þetta getur dregið úr blóðflæði út í handlegginn og auðveldað þér að fjarlægja hringinn.
  • Ef þú hefur nýlega klárað þungar lyftingaræfingu eða borðað stóra máltíð getur borgað sig að bíða í smá tíma til að sjá hvort fingurinn dragist ekki aðeins saman.

Hvernig mælir hringurinn lífsmörkin mín?

Ultrahuman hringurinn notar sambland af ýmsum nemum eins og hitastigsnema, PPG nema og hreyfinema (IMU) sem mæla útfrá fingrinum þínum. Öflug reiknirit taka síðan saman þessi gögn, vinna úr þeim og birta í Ultrahuman appið.

Hvernig virkar Ultrahuman hringurinn með M1 blóðsykursmælinum?

Með því að para saman gögn frá hringnum eins og hreyfingu, svefngæði, hitastig, öndun og fleira, með blóðsykursgögnum frá M1 blóðsykursmælinum er hægt að fá ótrúlega öfluga innsýn í hvernig mataræðið þitt og hvernig þú háttar þínum lífsstílsvenjum hafa áhrif á efnaskiptaheilsuna þína og alhliða heilsu.
Þetta gerir þér kleift að taka upplýstari og betri ákvarðanir til að halda heilsunni þinni í topp standi.

Hversu mikil er nákvæmni gildanna sem hringurinn mælir?

Nákvæmni hringsins er á pari við öflugustu heilsu og líkamsræktar "wearable vara" á markaðnum í dag

Customer Reviews

Based on 1 review
100%
(1)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
R
Ragnheiður Ólöf Skaptadóttir

ULTRAHUMAN AIR Snjallhringur