






CHROMA Kyndill
Greiðsludreifing með Netgíró, valin í greiðsluskrefinu
- Frí sending á Dropp afhendingarstað frá 12.990 kr
- Pantað fyrir kl. 12 á virkum degi: sent samdægurs
- 14 daga skilaréttur, endurgreitt
Um vöruna
Chroma Kyndillinn
Djúprautt og nær-innrautt ljós á ferðinni
Kyndillinn er hannaður fyrir nútíma líf: lítið, meðfærilegt og öflugt vasaljós sem þú beinir að afmörkuðu svæði, hvar og hvenær sem er. Notaleg birta og mildur ylur á axlir, hné eða mjóbak, hvort sem þú ert heima, í ræktinni eða á ferðalagi.
Af hverju Chroma?
Þetta er ekkert venjulegt vasaljós, þetta er handhægt rauðljósatæki sem er alltaf við höndina. Kyndillinn sameinar djúprautt (670 nm) og nær-innrautt ljós (810 nm og 850 nm) í einu tæki. Algeng notkunartilefni:
- Eftir æfingu eða langan vinnudag
- Sem stuttur liður í endurheimtarrútínunni
- Þegar þú vilt notalega birtu og mildan yl á afmarkað svæði
- Í kvöldrútínunni, þegar þú vindur ofan af þér
- Á ferðalögum, í ræktinni eða einfaldlega ofan í tösku
- Á húð, til dæmis í andliti eða á höndum
Fimm mínútna lota er þægileg lengd og passar auðveldlega inn í daginn.
Tæknin í smáatriðum
Ljósróf:
- 670 nm, djúprautt ljós (33.3%)
- 810 nm, nær-innrautt ljós (33.3%)
- 850 nm, nær-innrautt ljós (33.3%)
Tæknilegar upplýsingar sem CHROMA gefur upp:
- Ljósstyrkur: ~85 mW/cm² við ljósflötinn (faceplate)
- NIR hlutfall: ~67% af úttakinu er nær-innrautt
- Þyngd: 340 g (12 oz) með hulstri
- Efni: Málmhús með endingargóðu yfirborði
- LED ending: 80.000 klst
- Rafhlaða: Líftími yfir 800 klst
Sendingar og skil
Frí sending á Dropp afhendingarstað á pöntunum frá 12.990 kr. Afhendingarmátar og verð birtast í greiðsluferlinu.
Pantanir sem berast fyrir kl. 12 á virkum dögum fara samdægurs á höfuðborgarsvæðinu, næsta virka dag út á land.
Þú hefur 14 daga frá afhendingu til að hætta við kaupin og fá endurgreitt með sömu greiðsluleið. Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegum umbúðum. Sendu okkur línu á info@wayoflife.is með pöntunarnúmeri.







